Veðrun og rof
Veðrun er molnun og eyðing bergs. Mikilvægustu veðrunaröflin eru aflveðrun, efnaveðrun og lífræn veðrun, þessar mismunandi tegundir af veðrun vinna saman að því að brjóta bergið niður. Rof er það sem flytur efni í burtu frá þeim stað sem það myndaðist. Mikilvægustu roföflin eru vatnsrof, vindrof og jökulrof. Rof er einn af stærstu þáttum landmótunar.
Aflveðrun
Aflveðrun er þegar berg þennst út eða springur vegna mikilla hitabreytinga, dæmi um aflveðrun eru frostveðrun og sólsprenging. Frostveðrun verður þegar vatn kemst inn í sprungur í bergi og frýs þar. Þegar vatnið frýs þenst það út og sprengir ysta lagið á berginu. Sólsprenging verður t.d. við snögg hitabrigði, þegar brenn heit sól kemur upp eftir kalda nótt. Við þennan snögga hitamun myndast spenna í berginu og það getur sprungið. Sólsprenging er algeng á eyðimerkursvæðum.
Vindrof
Kallast það þegar vindur ber með sér veðrað efni. Vindrof hefur mikil áhrif þar sem er þurr jarðvegur og lítið gróið. Mesta vindrofið er að finna í eyðimörkum. Vindurinn getur ekki borið með sér stærri korn en þau sem eru einn til tveir mm í þvermál. Eitt af áhrifum vindrofs eru að eftir að vindrof herjar á berg er vindurinn búinn að opna bergið fyrir frekara veðrun og rofi. Vindrof getur líka verið vandamál á landbúnaðarsvæðum þar sem vindurinn ber mikið magn af mold af ökrum.
Lífræn Veðrun
Aflveðrun er þegar berg þennst út eða springur vegna mikilla hitabreytinga, dæmi um aflveðrun eru frostveðrun og sólsprenging. Frostveðrun verður þegar vatn kemst inn í sprungur í bergi og frýs þar. Þegar vatnið frýs þenst það út og sprengir ysta lagið á berginu. Sólsprenging verður t.d. við snögg hitabrigði, þegar brenn heit sól kemur upp eftir kalda nótt. Við þennan snögga hitamun myndast spenna í berginu og það getur sprungið. Sólsprenging er algeng á eyðimerkursvæðum.
Vatnsrof
rennandi vatn veldur rofi með því að grafa sig í berg og með því að bera með sér veðrað efni. Ef straumhraði í vatni er mikill getur það borið með sér mikið magn af efni. Því minni sem straumurinn er því minna efni getur vatnið borið. Sjórinn er annað dæmi um vatnsrof þar sem öldurnar skella á landinu og móta það. Rennandi vatn er það útræna afl sem mótar yfirborð jarðar hvað mest.
Efnaveðrun
Efnaveðrun er veðrun sem verður af völdum efna úr náttúrunni. Dæmi um þessi efni eru t.d. ammoníak, klórsambönd og ýmsar sýrur. Súrt regn er dæmi um efnaveðrun. Súrt regn verður vegna losunar koltvísýrings, brennisteinsoxíða og nituroxíða út í andrúmsloftið. Þessi efni blandast vatni í andrúmsloftinu. Sýran í vatninu getur haft slæm áhrif á plöntur byggingar og sjáfardýr.
Jökulrof
Skriðjöklar eru eins og nafnið gefur til kynna ekki kyrrir heldur skríða þeir eftir landinu. Á leið sinni yfir landið taka jöklarnir grjót og bergmylsnu úr jarðveginum sem frís fast við botninn. Jökullin einn og saman er ekki nógu harður til að valda jökulrofi en grjótið í botni jöku
lsins virkar eins og graftól. Ef jökull hefur mikið magn af grjóti getur hann verið einn mesti rofvaldur náttúrunnar. Afleiðingar jökulrofs eru til dæmis grettistök og u-laga dalir. U-laga dalir verða til þegar jökull grefur sér leið í gegn um dalinn og víkkar hann út. Grettistök eða aðkomusteinar eru stórir steinar sem hafa verið færðir langt í burtu frá þeim stað sem þeir urðu til.

Heimildaskrá
Árnason,U. (22.október 2003). Útræn öfl. Sótt frá Vísindavefurinn:
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=3815
Hilmar Egill Sveinbjörnsson. (2o15).Um Víða Veröld. Kópavogur:Námsgagnastofun
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=3815
Hilmar Egill Sveinbjörnsson. (2o15).Um Víða Veröld. Kópavogur:Námsgagnastofun